Bókasafn Kópavogs

Góðar og skemmtilegar bækur fyrir 6-8 ára börn: Arnheiður Borg. Rut fer í nýjan skóla Rut er að byrja í nýjum skóla. Í fyrstu er allt leiðinlegt en svo

Bækur fyrir 6-8 ára

Góðar og skemmtilegar bækur fyrir 6-8 ára börn:

Arnheiður Borg. Rut fer í nýjan skóla
Rut er að byrja í nýjum skóla. Í fyrstu er allt leiðinlegt en svo breytist eitthvað...
Þetta er fyrsta sagan um Rut, en þær eru alls fjórar.
  
Árni Árnason.HjördísHér segir frá Hjördísi og ævintýrum hennar í útlöndum og á Íslandi.

Árni Árnason.Þjófur um nótt
Garpur og Gunnar kynnast því af eigin raun hve mikilvægt er að hafa lögregluna til hjálpar þegar þjófur brýst inn í húsið heima hjá þeim.

Blake, Jon. Litli ofurhuginn
Dóttir heimsins mesta ofurhuga þráir ekkert eins heitt og að sýna eins flott atriði og pabbi hennar. Hún grípur tækifærið þegar það gefst.

Birgir Svan Símonarson. Dagur í lífi Skarpa
Skarpi er ekkert venjulegur strákur. Dag einn leggur hann af stað í ferðalag og lendir í skrýtnum ævintýrum.Einnig Skarpi og sérsveitin.

Donnelly, Elfine.  Ævintýraleg sjóferð
Hér segir frá ævintýrum þeirra Ottós og Benjamíns, en hann er fíll.Önnur bók um þá félaga er Fyrsti veðurfíll í heimi.

Doyle, Roddy. Flissararnir
Fullorðnir eiga að vera góðir við börn. Það vita allir. En hvað ef þeir eru það ekki? Þá koma flissararnir til sögunnar... 
 
Friðrik Erlingsson. Afi minn í sveitinni
Hér segir frá borgardreng, sem fær að vera í sumardvöl hjá afa í sveitinni. Og þar fær hann að kynnast ýmsu skemmtilegu...
 
Heede, Sylvia Vanden. Rebbi og Héra
Þetta eru litlar sögur af refnum Rebba og héranum Héru. Þær gerast í skóginum og þykja með eindæmum skemmtilegar.

Impey, Rose. Flati karlinn
Sagan segir frá dreng sem heyrir hljóð við gluggan sinn að kvöldi. Hann fer að hugsa sér hvað það gæti verið og ímyndunaraflið fer á flug...

 
Impey, Rose. Hræddu mig í svefn
Tvær stelpur fá stundum að sofa í tjaldi úti í garði. Þegar dimmir fara þær í skrítinn leik... 

Jón S. Jónsson. Hreinn og sjóræningjarnir
Sagan gerist á tímum Tyrkjaránsins fyrir mörg hundruð árum. Þá komu sjóræningjar til Íslands og tóku fólk til fanga.
 
Jón S. Jónsson. Pétur hittir Svart og Bjart
Þetta er saga um einelti. Svartur og Bjartur eru hrekkjusvín og stríða Pétri. En allt fer á besta veg að lokum. 

King– Smith, Dick.Fingurætan
Jarðálfurinn Úlfur finguræta situr um saklaust fólk og vill heilsa því, en bítur af því fingur í leiðinni og étur. En svo kynnist hann Guðrúnu...
 
Kristín Steinsdóttir.Ármann og Blíða
Ármann er sex ára. Blíða er besti vinur hans. Hann kann að sparka bolta. Stundum stamar hann, ekkert mikið, bara svolítið... 

Lindgren, Astrid. Barnadagur í Ólátagarði
Það er alltaf gaman í Ólátagarði. Börnin í húsunum þremur halda hópinn og eru alltaf að gera eitthvað skemmtilegt... 

Maccullagh, Sheila. Ríkarður rauði
Hér segir frá sjóræningjanum Ríkarði rauða og ævintýrum hans. Fleiri sjóræningjasögur eru til eftir sama höfund.   
 
Nöstlinger, Christine. Sögur af Frans
Frans er sex ára gamall strákur, með mikla, ljósa lokka svo að sumir halda að hann sé stelpa! Sem er auðvitað mesti misskilningur. Það er alltaf eitthvað að gerast hjá Frans. Bækurnar um hann eru margar og allar skemmtilegar. 

Sigsgaard, Jens. Kata litla og brúðuvagninn
Kata litla fær lánaðan brúðuvagn systur sinnar til að keyra brúðuna sína úti. En svo fer að rigna og vagninn má ekki blotna. Hvernig fer Kata litla nú að? 

Tollmien, Cordula. Láttu þér batna
Alexander litli verður veikur og  þarf að vera hjá ömmu. Amma er gamaldags, finnst honum og á ekki einu sinni sjónvarp. En amma leynir á sér... 

Tollmien, Cordula. Vertu vinur minn
Karólína er einkabarn og fær allt sem hún vill. Næstum allt. Hana langar í gæludýr, en pabbi er með ofnæmi og það er ekki hægt að vera með dýr á heimilinu. 

Uebe, Ingrid. Vampýrusögur
Hvað þarf maður lífsnauðsynlega að vita um vampýrur til að geta varist þeim? Hér eru nokkrar smásögur, mátulega hrollvekjandi, en líka skemmtilegar. 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf