Bókasafn Kópavogs

Góðar og skemmtilegar bækur fyrir 8-10 ára:  Auður Jónsdóttir. Aljgört frelsi Tinna trassi er að byrja sumarfríið og vill fá súkkulaði í morgunverð. Það

Bækur fyrir 8-10 ára

Góðar og skemmtilegar bækur fyrir 8-10 ára:

 Auður Jónsdóttir. Aljgört frelsi

Tinna trassi er að byrja sumarfríið og vill fá súkkulaði í morgunverð. Það samþykkir mamma hennar ekki svo Tinna strýkur að heiman ásamt talandi hundinum Lubba...

Chapman, Linda. Einhyrningurinn minn

Lára, 9 ára, er nýflutt í sveitina með foreldrum sínum. Fljótlega eignast hún hest og það er enginn venjulegur hestur...Þetta er fyrsta bókin um Láru og einhyrninginn en þær eru fleiri.

DiTerlizzi, Tony. Spiderwick sögurnar

Þrír krakkar, Jared, Simon og Mallory flytja upp í sveit með foreldrum sínum, í mjög einkennilegt umhverfi, þar sem ævintýrin gerast. Sögurnar eru margar og allar jafn spennandi og dularfullar...

Doyle, Roddy.Ævintýri á meðan

Fyrir misskilning lendir herra Mack blásaklaus í fangelsi. Nú þurfa hundurinn Hrói og vinir hans að bregðast skjótt við og leysa hann úr haldi. Æsispennandi saga.

Draugurinn sem hló

Hér eru á ferðinni draugasögur skrifaðar af 15 norrænum rithöfundum. Alls konar sögur, frá óbyggður Íslands, skógum Finnlands, dönskum herragarði og úr sænska skerjagarðinum, allt spennandi og skemmtlegar sögur.

 Gunnar Helgason. Goggi og Grjóni

Goggi og Grjóni eru á 9. ári og búa í sömu blokk. Það eru alltaf að gerast einhver prakkarastrik í kring um þá, sem ekki eru allir jafn hrifnir af. Í bók nr. 2 fara þeir félagar í sveit og þar er ekki síður fjörugt.

Helga Möller. Við enda regnbogans

Villa er 9 ára. Meðan mamma liggur á sjúkrahúsi er frænka Villu fengin til að gæta hennar. En hún skilur ekki alltaf uppátæki litlu frænku sinnar...

Gerður Kristný. Land hinna týndu sokka

Þorgeir langar að eignast hund.  En vegna gula hundsins sem týndist fyrir löngu hefur hann litla von um að sá draumur geti ræst. En svo heyrir hann um Land hinna týndu sokka. Gæti guli hundurinn verið þar?

Guðrún Helgadóttir.Öðruvísi dagar

Hér segir frá Karen Karlottu og fjölskyldu hennar. Hún kynnist gamalli konu í nágrenninu og einkennilegir hlutir fara að gerast. Þetta er fyrsta sagan af þremur um sömu persónur.

Helgi Guðmundsson.Leópold sirkusljón

Leópold aðalljón er kominn til Íslands með Sirkus Marína. Honum leiðist og ákveður að strjúka. Það verður uppi fótur og fit þegar hann stekkur út og margir reyna að  ná honum...

 Iðunn Steinsdóttir. Út í víða veröld

Það er undarleg hersing sem heldur út í heim til að leita svars við brennandi spurningu. Og það skiptir miklu máli að fá rétt svar...

Jannausch, Doris.Draugasögur

Hér birtast nýtísku draugasögur, t.d. Grímur hinn grimmi, Hauslausi draugurinn og Andlitið á glugganum...

King-Smith, Dick. Vaski grísinn Baddi

Baddi er grís á bóndabæ. Hann dáist mikið að fjárhundinum Flugu og ákveður að hann vilji verða fjársvín. Hvernig gengur honum það?

Kirkegaard, Ole Lund.  Fróði og allir hinir grislingarnir

Þegar þjófur á hlaupahjóli fer að geysast um bæinn á kvöldin taka krakkarnir til sinna ráða. Fróði, Stína og allir hinir gerast leynilöggur og brátt kemur margt skrýtið í ljós.

Kristín Steinsdóttir.Abrakadabra

Daginn sem töfrakarlinn Argur sveif inn um gluggann hjá Alla hósft ótrúleg atburðarás.  Eina ráðið til að vita hvað gerðist er að lesa bókina...

Tomlinson, Jill. Myrkfælna uglan

Uni er nákvæmlega eins og hver annar uglu-ungi fyrir utan eitt. Hann er myrkfælinn. Foreldrar hans eru á ferðinni á nóttinni en Uni vill vera dagfugl.

Sigríður Eyþórsdóttir. Lena Sól

Lena Sól og mamma hennar eru nýfluttar til Reykjavíkur. Lena Sól er að byrja í nýjum skóla og mamma í nýrri vinnu...

Snicket, Lemony. Úr bálki hrakfalla

Baudelaire systkinin missa foreldra sína snögglega af slysförum. Þeim er komið fyrir hjá frænda sínum sem er mesti óþokki.  En börnin eru dugleg að bjarga sér og láta ekki snúa á sig. Fyrista bókin heitir Illa byrjar það, en þær eru miklu fleiri.

Wilson, Bodge. Dagur risabani

Vinirnir Dagur og Símon fá margar góðar hugmyndir. Heima hjá þeim er sjaldan ró og friður, því þeir sjá geimverur, górillur og fleira furðulegt í hverju skoti...

Withe, E.B. Stúart litli

Stúart er engin venjuleg mús, enda er ekki beinlínis venjulegt að mús eigi mennska foreldra og bróður  og verði að hegða sér í samræmi við það...

Þórey Friðbjörnsdóttir. Eplasneplar

Af hverju má maður ekki vaka fram eftir á kvöldin, fíflast í messu og kveikja í flugeldum inni í herbergi? Þótt maður sé kominn með gel í hárið og í gamla leðurjakkann hans Ragga frænda?...

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf