Bókasafn Kópavogs

Bækur um einelti: Hvað er einelti  Einelti er það kallað þegar hópur einstaklinga reynir að útiloka einn eða hugsanlega fleiri út úr hópnum með öllum

Bækur um einelti

Bækur um einelti:

Hvað er einelti 

Einelti er það kallað þegar hópur einstaklinga reynir að útiloka einn eða hugsanlega fleiri út úr hópnum með öllum mögulegum hætti. Þetta getur verið með stöðugri stríðni, gera fórnarlambið að aðhlátursefni, sýna því vanþóknun, hæðast að því, bera út slúður um fórnarlambið, einangra það og útskúfa og jafnvel getur verið um líkamlega valdbeitingu að ræða.

Sigtryggur Jónsson sálfræðingur. Doktor.is

Bækur fyrir yngstu börnin

Andersen, H.C. Ljóti andarunginn   (- - - - )

 Álftaregg lendir í hreiðri andanna og ungast þar út. Úr því kemur auðvitað svansungi og hann er öðruvísi en andarungarnir. Því er hann hafður útundan og allir eru vondir við hann. En um síðir vex hann upp og allir sjá að þarna er fagur svanur.

Chapouton, Anne-Marie. Júlíus  (1991)

Júlíus litli leikur á flautu af lífi og sál. En það er sama hve vel hann leikur, alltaf gera einhverjir athugasemdir við útlitið á honum. Hár hans er of sítt, finnst fólki, en þegar hann lætur klippa sig, finnst því hann asnalegur svona sköllóttur. En um síðir lærir fólkið að meta hann og hæfileika hans, hlustar og nýtur.

Friðrik Erlingsson. Litla lirfan ljóta  (2002)

Hér segir frá lítilli lirfu, sem býr á laufblaði í grænu tré. Hún hittir ýmsa og ekki eru allir jafn vingjarnlegir. Leiðinleg bjalla agnúast út í hana, býfluga leggur hana í einelti og gömul, grimm kónguló reynir að plata hana. Meira að segja ætlar þröstur að grípa hana og gefa ungum sínum að borða.

Janus–Nielsen, B. Stubbur  (- - - -)

Stubbur er 5 ára og á tvíburabræðurna Óla og Pétur, sem eru 8 ára. Óli og Pétur segja alltaf við Stubb: „Þú mátt ekki vera með okkur af því að þú ert svo lítill.” Þetta leiðist Stubbi, en um síðir læra stóru bræðurnir að maður á ekki að skilja aðra útundan.

Jón Sv. Jónsson. Pétur hittir Svart og Bjart  (2002)

Það er komin ný stelpa, Anna, í bekkinn hans Péturs. Í bekknum eru líka Svartur og Bjartur, sem eru alltaf að gera einhver skammastrik. Þeir ráðast á Önnu og hrekkja hana illa. Sem betur fer nær Pétur að bjarga henni. En nú er líka farið að leggja Pétur í einelti...

Harpa Lúthersdóttir. Má ég vera memm?   (2003)

Þetta er sagan um Fjólu sem er að byrja í 6 ára bekk.  Hún á tvær góðar vinkonur en þær lenda í öðrum bekk.  Þegar Fjóla ætlar að leika við þær í frímínútum reka bekkjarfélagar vinkvennanna hana í burtu og þær gera ekkert til að breyta því.  Úr þessu verður einelti sem varir mestan part vetrarins. En þá tekur ein stelpa sig til og fer að leika við Fjólu. 

Kristlaug María Sigurðardóttir. Ávaxtakarfan   (2000)

Mæja jarðarber er lögð í einelti af öllum ávöxtunum í ávaxtakörfunni.  Hún verður að vinna öll verstu verkin og hefur aldrei tíma til að leika sér.   En svo kemur Gedda gulrót fyrir mistök í körfuna. Allir vita að ávextir þola ekki grænmeti og smám saman tekur hún að sér hlutverk Mæju jarðarbers, sem  aftur á móti fer að taka þátt í einelti hinna.

 

Bækur fyrir eldri börn

Draumey Aradóttir. Þjófur og ekki þjófur  (2001)

Birta, 12 ára, er leið því að Elísa, sem hefur verið besta vinkona hennar síðan í 6 ára bekk, hefur ekki viljað tala við hana um nokkurn tíma. Ný stelpa, Vaka, er byrjuð í bekknum og Elísa er bara með henni. Birta kynnist þó Vöku, en þær Elísa virðast hafa fjarlægst. Elísa er alltaf með öðrum stelpum og inn í þá klíku kemst Birta ekki…

Haller, Bent. Ísstelpan   (2002)

Í þessari bók eru nokkrar smásögur, þar á meðal Ísstelpan. Þar segir frá vinkonunum Lenu og Söndru sem alltaf leika sér saman. Dag einn kemur til þeirra stelpa sem heitir Iben. Hana langar að leika við stelpurnar, en þær vilja ekkert með hana hafa. Smám saman kólnar Iben upp og það endar með því að hún frýs, þrátt fyrir að veðrið sé hlýtt og yndislegt.

Hallfríður Ingimundardóttir. Pési og verndarenglarnir  (1998)

Pési verður að þola stríðni og einelti í skólanum en hann á athvarf hjá afa sínum - þangað til daginn sem allt breytist. Daginn þann opnast líka augu hrekkjusvínanna sem ætla að snúa við blaðinu og gerast verndarar Pésa.

Karl Helgason. Í pokahorninu  (1990)

Hér segir frá Didda. Hann er væskilslegur og er strítt í skólanum. Í dagdraumum sínum er hann hins vegar hetja og hann vill að draumarnir rætist í veruleikanum. Diddi tekur á öllu sem hann á til og í ljós kemur að þessu drengur á sitthvað í pokahorninu sem kemur öðrum á óvart.

Kirkegaard, Ole Lund. Gúmmí Tarsan  (1978/2002)

Ívar Ólsen er kallaðu Gúmmí Tarsan af því hvað hann er lítill og ræfilslegur. Honum gengur illa í skólanum og kann ekki að spila fótbolta, hvað þá að hann geti spýtt í boga eins og stóru strákarnir. En dag einn hittir Ívar Ólsen galdranorn og allt í einu getur hann óskað sér hvers sem hann vill.

Nöstlinger, C. Skólasögur af Frans  (1991)

Þetta er þriðja bókin um Frans og hann er byrjaður í skóla. Í bekknum er stór og feitur strákur sem þykir gaman að stríða Frans og pína. Þá er erfitt að vera minnstur og mjóstur og verða alltaf skrækróma þegar maður þarf að æsa sig…

Valgeir Skagfjörð. Saklausir sólardagar  (2000)

Lúkas, 10 ára, er svarthærður og dökkur á hörund og strákarnir stríða honum vegna útlitsins. Í hverfinu eru villingar sem pína minnimáttar. Þegar besti vinur Lúkasar snýr við honum baki, sýnir hann hvað í honum býr...


Bækur fyrir unglinga

 Helga Ágústsdóttir. Ekki kjafta frá (1985)

Edda, í 9. bekk, fer að draga sig inn í skel þegar Dísa vinkona hennar tekur Palla, sem Edda er hrifin af, frá henni. Hún einangrast frá hópnum. En tilveran breytist þegar ný stelpa kemur í bekkinn og rífur Eddu upp úr eymdinni…

Iðunn Steinsdóttir. Mánudagur bara einu sinni í viku(2007)

Unnur er í 9. bekk og alveg búin að fá nóg af látunum í skólasystkinum sínum. Verst láta Fannar og vinir hans, sem nota hvert tækifæri til að stríða. Ingvi er nýfluttur heim frá útlöndum og er helsta fórnarlamb strákanna…

Kristín R. Thorlacius. Sunna þýðir sól(1990)

Hvað hefur eiginlega komið fyrir? Hvers vegna vilja vinkonur Sunnu ekki lengur tala við hana eða verða samferða úr skólanum eins og venjulega? Hvers vegna láta þær eins og þær sjái hana ekki? Hún hefur þó ekki gert þeim neitt…

Ragnar Gíslason. Nornafár (2004)

Dagmar er að byrja í nýjum skóla. Nokkrar stelpur sem klæða sig eins og nornir taka að ofsækja hana við öll tækifæri. Hvað vilja þær henni, og eru þær nornir í raun og veru? Um síðir fær hún hjálp til að takast á við þær.

Ragnar Gíslason. Tara (2003)

Konni, besti vinur Unnars, hefur slasast alvarlega og skólafélagarnir kennar Unnari um. Hann er lagður í einelti. Loksins finnst Unnari að hann geti ekki lifað við þetta ástand...

Ragnheiður Gestsdóttir. Leikur á borði (2000)

Sóley er klár og sjálfstæð stelpa. Í skólanum gengur henni vel að læra, en bekkjarsystkini hennar leggjast öll á eitt að gera henni lífið leitt. Þegar ný stelpa kemur í bekkinn fara óvæntir hlutir að gerast sem eiga eftir að gjörbreyta lífi Sóleyjar.

Stark, Ulf. Ekki bara töffarar (1990)

Eitthvað dularfullt er á seyði í húsinu og það er eins og einhver vilji hrekja fjölskylduna á brott… Matti er nýfluttur í sveitina og asnast til að segja strákunum að hann hafi verið einn aðaltöffarinn í borginni. Þeir eru harðir í horn að taka og bíða eftir að hann sýni hvers konar glæpamaður hann er...

Thomsen, Thorstein. Aldrei aftur nörd (2002)

Þegar Álfur mætir aftur í bekkinn sinn eftir nokkurra vikna veikindafrí er allt breytt. Hann er kominn í botnfallið ásamt Flosa, eða Feita eins og hann er kallaður. Sagan lýsir miskunnarleysi unglingsáranna, einelti, drottnunargirni og ofbeldi, en einnig væntumþykju, samkennd og ást.


Bækur fyrir fullorðna   (bækur á 1. hæð, myndefni á 2. hæð)

Gegn einelti : handbók fyrir skóla. Mt. 371.58 (útg. 2000)

Saman í sátt : leiðir til að fást við einelti og samskiptavanda í skólum. Mt. 302.34 (útg. 2001)

Guðjón Einarsson. Einelti. Mt. 302.24 (útg. 1996)

Svava Jónsdóttir. Hið þögla stríð : einelti á Íslandi. Mt. 302.24 (útg. 2003)

 

Myndbönd og DVD diskar

Einelti : helvíti á jörð DVD, 29 mínútur. Mt. 371.58 (útg. 2003)

Eintal með Stefáni Karli : fyrirlestur um uppeldi. Myndband, 132 mínútur. Mt. 371.58 (útg. 2003)

Katla gamla. DVD, 28 mínútur.  Mt. 813B   (útg. 2005)

Saga Dóra. Myndband, 17 mínútur.  Mt. 371.58  (útg. 2003)

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf