Bókasafn Kópavogs

Bækur um sorg: Bækur fyrir yngri börn Akerson, Kim Fupz. Og svo varð afi draugur. Þýð. Ólöf Eldjárn. Ásbjörn litli missir afa sinn og saknar hans mjög.

Bækur um sorg

Bækur um sorg:

Bækur fyrir yngri börn

Akerson, Kim Fupz.

Og svo varð afi draugur. Þýð. Ólöf Eldjárn.

Ásbjörn litli missir afa sinn og saknar hans mjög. Mamma segir að hann sé orðinn að engli, en pabbi segir að hann verði að mold. En Ásbjörn á góðar minningar og lætur huggast við þær.

Alex, Benny.

Afi og ég tölum saman um dauðann

Þýð. Gunnar J. Gunnarsson.

Hér fylgjumst við með Maríu og afa hennar.  Þau fara að tala um dauðann þegar þau jarða kettling. Svo deyr afi og ótal spurningar vakna. Bókin er ætluð til að auðvelda foreldrum og börnum að ræða saman um þetta erfiða efni.

Guðmundur Thorsteinsson

Sagan af Dimmalimm

Dimmalimm er lítil kóngsdóttir sem sem kynnist fallegum svani. Þau verða vinir og hittast oft. En dag einn deyr svaninn og hún syrgir hann mjög. En allt endar vel.

Guðrún Alda Harðardóttir.

Það má ekki vera satt

Steinarr, 6 ára, missir pabba sinn í bílslysi. Hann neitar að trúa þessu og er reiður þeim sem  olli slysinu. Litla systir skilur ekki hvað hefur gerst. En fjölskyldan talar saman og smám saman vinnur Steinarr úr sorginni þó að hann sakni pabba áfram.

Roc, Lois.

Að kveðja í síðasta sinn.

Allir verða einhvern tíma að kveðja um lengri eða skemmri tíma. Dapurlegast er að kveðja þá sem deyja og koma ekki aftur. En öll deyjum við einhvern tíma. Sumir deyja óvænt, en stundum er dauðinn lausn.

 

Bækur fyrir eldri börn

Bergljót Hreinsdóttir. 

Engin venjuleg Valdís

Valdís er 5 ára glöð og hress stelpa sem á stóra fjölskyldu. En sorgin ber að dyrum þegar stóra systir hennar lendir í umferðarslysi ásamt vini sínum og þau deyja bæði.

Valdís syrgir systur sína, en lífið heldur áfram.

Friðrik Erlingsson.

Benjamín dúfa

Fjórir ungir drengir stofna riddarareglu og leika ævintýraleiki í heilt sumar. En svo verður þeim sundurorða og ófyrirsjáanleg atburðarás hefur í för með sér hræðilegt slys.

Guðrún Helgadóttir

Meira af Jóni Oddi og Jóni Bjarna

Þetta er önnur bókin um þá bræðurna og í henni deyr Selma, systir vinar þeirra. Það er rætt um þetta heima hjá drengjunum og þeim hjálpað til að vinna úr sorginni.

(Alls eru bækurnar þrjár.)

Guðrún Helgadóttir 

Sitji guðs englar

Hér segir frá sjómannsfjölskyldu á stríðsárunum, þegar skip fórust oft vegna tundurdufla og kafbátahernaðar. Bátur úr bænum ferst og margir krakkar missa pabba sinn. Sorg ríkir í bænum, en fólkið reynir að styðja hvert annað.  (Alls eru bækurnar þrjár)

Lindgren, Astrid. Bróðir minn Ljónshjarta. Þýð. Þorleifur Hauksson

Bræðurnir Axel og Jónatan búa hjá móður sinni. Axel er veikur og veit að hann mun deyja. En í eldsvoða bjargar Jónatan honum, en ferst sjálfur. Áður en hann deyr segir hann Axel að þeir sjáist í Nangijala. Og þar gerast ævintýrin.

Marinó L. Stefánsson. 

Dísa í Dunhaga

Dísa og fjölskylda hennar búa í sveit, en dag einn lenda þau í bílslysi og faðir hennar deyr. Fjölskyldan flyst til Reykjavíkur. Það er eins og ekki hafi verið unnið nægilega vel úr áfallinu. Dísa stendur sig samt vel í skóla, en þegar á líður lendir hún í slæmum félagsskap og verður að taka á til að komast á rétt ról á ný.

Sigrún Björgvinsdóttir.

Ég er kölluð Día

Día, 11 ára, flytur út á land með pabba sínum og byrjar í nýjum skóla. Hún hefur misst mömmu sína en vill ekki horfast í augu við það. Ekki fyrr en vinkona hennar segir henni frá alvarlegum veikindum móður sinnar, sem hún viðurkennir hvernig komið er.

Stefán Jónson. 

Skóladagar (Framhald af Vinum vorsins).

Skúli Bjartmar, 10 ára, er fluttur úr sveit til Reykjavíkur. Þar kemst hann í kynni við pörupilta, en sleppur vel frá því. En faðir hans veikist og deyr. Skúli er yfirkominn af harmi og spyr spurninga sem ómögulegt er að svara.

White, E.B. 

Vefurinn hennar Karlottu.

Þýð. Helga S. Einarsdóttir

Lítil stúka, Fura, bjargar lífi lítils gríss sem nefndur er Völundur. Fleiri dýr koma við sögu, t.d. rottan Teitur og kóngulóin Karlotta sem er ofsaklár, hefur búið til poka utan um 514 litlu eggin sín, sem munu lifna við á næsta ári. En hún  segir Völundi að þá verði hún dáin, hennar tími sé útrunninn. Völundur er harmi lostinn yfir þessu, en tekur að sér að bjarga eggjapokanum hennar sem ungast út næsta vor.

 

Bækur fyrir unglinga

Adnrés Indriðason.

Fjórtán...bráðum fimmtán.  

Elías, á 15. ári, hangir með félögunum, fær sumarvinnu á steypustöð, kynnist Evu og verður hrifinn og lífið gengur sinn gang. Þar til pabbi veikist alvarlega og deyr…

(þetta er 2. bókin af þremur)

Pohl, P.Ég sakna þín Þýð. Sigrún Árnad.

Eineggja tvíburarnir Silla og Tína eiga 14 ára afmæli í sumar. En áður en þar kemur deyr Silla í bílslysi. Sagan fjallar um Tínu sem lifir af og reynir að spjara sig eftir þetta áfall. 

Stefán Jónsson. Hanna Dóra

Hanna Dóra, 12-13 ára, hefur alist upp hjá móður sinni en faðirinn aldrei skipt sér af henni. Þegar móðirin veikist og deyr stendur stúlkan ein uppi, en föðurafinn  kemur henni fyrir í sveit. Þar er dauflegt, en sitt hvað verður þó til að létta lífið.

Wahl, Mats. Maj Darling

Sagan  er um 12-13 ára krakka. Maj flyst til bæjarins og verður strax góð vinkona Harrys og Hasse. Þeir finna til afbrýðisemi hvor í annars garð en þau þrjú eru samt oftast saman. Þeir kenna Maj að synda í sjónum og þegar þau dag einn synda út í fleka sem liggur þar, fer að hvessa og hún þorir ekki til baka. En þar sem þau berjast í öldunum verður hræðilegt slys.

Þorgrímur Þráinsson.Tár bros og takkaskór.

Kiddi og Tryggvi,14 ára, eru bestu vinir og miklir fótboltaáhugamenn. Kiddi fer með

Agnesi vinkonu sinni út að hjóla. Þá er keyrt á þau með þeim afleiðingum að Agnes slasast mikið og deyr. (þetta er önnur bókin af þremur.)

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf