Í barnadeild er saman komið allt efni sem sérstaklega er ætlað börnum.
Þar er mikið úrval bóka fyrir alla aldurshópa. Þarna eru sögur af öllu tagi, myndasögur og -blöð og myndabækur. Líka
fræðibækur um alls konar efni, t.d. dýr, hafið, himingeiminn fornöld og margt fleira. Einnig bækur á enskur og norðurlandamálum.
Þá er í barnadeild fjölbreytt úrval barnamynda á DVD og myndböndum og tónlist, leikir og fræðsluefni á diskum.
Í barnadeild fer fram ýmislegt barnastarf, svo sem sögustundir fyrir 3ja-6 ára að vetrinum, sumarlestur á sumrin, bangsadagsgetraun í október og
margt fleira sem auglýst er þegar við á.
í barnadeild er hægt að láta fara vel um sig í þægilegum sófum með bók í hendi, eða tylla sér við borðið
þar sem Andrés önd og fleiri teiknimyndahetjur eiga sinn stað. Að maður nú ekki tali um Leshúsið þar sem notalegt er að kúra með
lesefni.
Svo er í barnadeildinni dót handa yngstu börnunum. Já það er eitthvað við allra hæfi í barnadeildinni!