Barnahornið okkar í Lindasafni er staðsett í miðju safni. Það markast af barnabókum sem eru geymdar í lágum bókakössum fyrir börn á aldrinum 0 til 8 ára. Einnig eru þar tímarit eins og Andrés Önd, Galdrastelpur, Myndasögusyrpan og hasartímarit. Rétt hjá eru hljóðbækur fyrir börn og unglinga.
Barnamyndir eru geymdar hjá öðrum myndum inn á safninu öllum til útláns. Bækur og annað lesefni fyrir eldri börn og unglinga eru að finna innst í safninu. Boðið er upp á ýmislegt barnastarf, svo sem sögustundir fyrir 3-6 ára að vetrinum, sumarlestur á sumrin, bangsadagsgetraun í október og margt fleira sem auglýst er þegar við á.
Myndir...