Í Barnadeildinni er boðið upp á námskeið í meðferð bóka fyrir leikskólabörn á aldrinum 4ra–5 ára. Námskeiðið gengur út á að ganga vel um á bókasafni, fara vel með bækur og hvað þarf að gera til að þær haldist heilar og hreinar.
Sýnt er hvað er framhlið, bakhlið og kjölur og hve mikilvægur hann er, hvernig á að fletta og leggja frá sér bók. Svo er lesin saga þar sem þessi atriði koma fyrir. Í lokin taka allir smá próf og fá viðurkenningarskjal með nafni sínu.
Umsjón með námskeiðinu hefur deildarstjóri Barnadeildar, Inga Kristjánsdóttir.