Bókasafn Kópavogs

Safnkynningar fyrir börn og unglinga Grunnskólabörnum er boðið í safnkynningu á Bókasafnið. Miðað er við 4. bekk og 8. Bekk. Gengið er með börnum 

Safnkynningar

Safnkynningar fyrir börn og unglinga

Grunnskólabörnum er boðið í safnkynningu á Bókasafnið. Miðað er við 4. bekk og 8. Bekk. Gengið er með börnum  um safnið, þeim sýnt hvar er að finna efni sem ætla má að þau hafi sérstakan áhuga fyrir.  Lögð er áhersla á umgengni á safninu, þar sé ekki gerður hávaði, því margir leita þangað einmitt til að fá næði.

Sagt er lítillega frá starfseminni eftir því sem aldri barna hæfir. Börnum í 4. bekk er sýnt  sérstaklega efni Barnadeildar, hvernig efni er raðað með litamerkingum til að gera það sem aðgengilegast. Lögð er áhersla á að börnin geti ófeimin spurt bókavörðinn ef þau vantar aðstoð, því hann er á staðnum til að aðstoða gesti. Börnum í 8. bekk er sýnt leitiarkerfið Gegnir.is til að þau geti bjargað sér sjálf ef svo ber undir. Ef kennarar hafa sérstakar óskir er reynt að verða við þeim.

Safnkynningar fyrir leikskólabörn

Leikskólabörn geta einnig fengið safnkynningu. Hún er að mestu miðuð við Barnadeildina, og umgengni á safninu yfirleitt. Þá er leikskólabörnum boðið að koma á námskeið í meðferð bóka. Þar er einnig komið inná hegðun á safninu. Börnin taka smá próf og fá skírteini til merkis um að þau hafi lokið námskeiðinu.

Hægt er að panta safnkynningar fyrir hópa

Ef óskað er eftir má tengja stutta útgáfu af sögu Kópavogs við þessar heimsóknir, hvernig umhorfs var í bænum fyrir um hálfri öld, hvernig og hvers vegna allt breyttist til þess sem nú er.

Safnkynningar Náttúrufræðistofu Kópavogs
Einnig er hægt að panta safnkynningu hjá Náttúrufræðistofu Kópavogs, sem deilir Safnahúsinu með Bókasafni Kópavogs, í síma 570-0430 eða með tölvupósti: natkop@natkop.is.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf