Sögustundir í aðalsafni
Yfir vetrartímann, frá 1.okt. til 30. apríl eru fastar sögustundir fyrir 3-6 ára börn. Þær eru á miðvikudögum kl. 10:00-11:00. Einnig
eru uppákomur af ýmsu tagi fyrir börnin sem við auglýsum sérstaklega.
Rússnesk sögustund fyrir 3-6 ára börn er fyrsta og
síðasta laugardag yfir vetrarmánuðina á 3. hæð kl. 14:00. Umsjón með þeim hefur Liudmila Moiseeva.
Hægt er að panta sögustundir fyrir hópa í síma 570-0450 eða með
tölvupósti: bokasafn@kopavogur.is.
Sögustundir í Lindasafni
Í Lindasafni eru sögustundir fyrir 3-6 ára börn á þriðjudögum kl. 10.00 frá 1. október til 30. apríl. Í sögustundum er
lesið fyrir börnin, þeim sagðar sögur og farið með vísur og þulur. Einnig er spjallað við börnin um lesefnið.
Hægt er að panta sögustundir fyrir hópa utan fastra tíma í síma 564-0621 eða með tölvupósti: lindasafn@kopavogur.is.