Sumarlestur er skemmtilegt sumarnámskeið fyrir 6-12 ára
krakka og stendur yfir í júní, júlí og ágúst. Það er ókeypis og allir geta verið með. Auk ánægjunnar af að
lesa góðar bækur viðhalda börnin þeirri lestrarleikni sem þau tileinka sér í skólanum á veturna.
Þátttakendur skrá sig á námskeiðið þegar þeir koma í fyrsta skipti. Þeir fá blað sem
þeir skrifa á hvað lesið er og fá svo stimpil á bókasafninu. Allir fá happamiða þegar þeir skila lesinni bók. Miðarnir fara
í pott og í lok námskeiðsins er dregið úr pottinum og nokkrir heppnir fá vinning!