Lindasafn, Lindaskóla, Núpalind 7, 201 Kópavogi, s: 564-0621, lindasafn@kopavogur.is
Flýtilyklar
Ábyrgð
Erindaröðin Ábyrgð heldur áfram á Bókasafni Kópavogs á fimmtudögum kl. 17:15. Fjórir þekktir fyrirlesarar greina frá viðhorfi sínu til ábyrgðar og fimmtud. 1. mars er komið að Jóni Björnssyni, sálfræðingi og rithöfundi. Þessi erindaröð er ekki ætluð til að draga neinn til ábyrgðar, heldur til að fólk geti velt fyrir sér hugtakinu ábyrgð og áttað sig á hvað felst í því.
Undanfarin misseri hefur verið kallað eftir ábyrgð á þeim hamförum sem skekið hafa þjóðfélagið. Fjórir
þekktir fyrirlesarar greina frá viðhorfi sínu til ábyrgðar:
16. febrúar: Gunnar Hersveinn heimspekingur
23. febrúar: Ragna Árnadóttir lögfræðingur
1. mars: Jón Björnsson sálfræðingur og rithöfundur
8. mars: Jóna Hrönn Bolladóttir prestur
Öll erindin hefjast kl. 17:15, með u.þ.b. 30 mínútna erindi og síðan verða fyrirspurnir og umræður þar sem gestir geta spurt fyrirlesara og sagt sína skoðun. Hver fyrirlesari hefur algjörlega frjálsar hendur um efnistök.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Bókasafn Kópavogs er í Hamraborg 6a, við hliðina á tónleikahúsinu Salnum.





