Bókasafn Kópavogs

Bangsadagurinn 2011 Á Bókasafni Kópavogs er bangsadagurinn haldinn hátíðlegur ár hvert með bangsagetraun sem er í gangi allan októbermánuð. Getraunin er

Bangsadagurinn 2011

Á Bókasafni Kópavogs er bangsadagurinn haldinn hátíðlegur ár hvert með bangsagetraun sem er í gangi allan októbermánuð. Getraunin er ætluð 12 ára og yngri en börnin skrifa svör sín á miða og setja í pott sem dregið er úr á bangsadaginn. Vinningarnir eru bangsar.

Alþjóðlegi bangsadagurinn er 27. október. Sagan segir að  þegar Theodore Rooswelt (1858-1909) Bandaríkjaforseti var ungur, fór hann eitt sinn á bjarnarveiðar. Hann komst í færi við bjarnarhún en gat ekki hugsað sér að skjóta hann. Þetta vakti mikla athygli og kátínu  og kaupmaður nokkur fór að framleiða leikfangabangsa sem hann kenndi við forsetann og kallaði hann „bangsann hans Teddys“ (teddy´s bear). Segja má að þetta hafi verið upphafið að vinsældum leikfangabangsans, sem er uppáhald barna (og fullorðinna) um allan heim.

Í ár voru átta dregnir úr pottinum og fengu allir bangsa í verðlaun. Nöfn vinningshafa eru þessi:

Ástrós Eva Ingvarsdóttir 9 ára
Elín Mist Sigurðardóttir 10 ára
Helgi Hrannar Ariem 8 ára
Katla Rut Róbertsdóttir Kluvers 10 ára
Lilja Sól Viðarsdóttir 11 ára
Linda Erwinsdóttir 5 ára
Rebekka Sól Jóhannsdóttir 12 ára
Úlfur Ingólfsson 7 ára

Starfsfólk Bókasafnsins óskar vinningshöfum til hamingju með bangsana sína!



Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf