Lindasafn, Lindaskóla, Núpalind 7, 201 Kópavogi, s: 564-0621, lindasafn@kopavogur.is
Flýtilyklar
Botnakeppni bókasafnsins

Botnakeppnin á Bókasafnsdeginum 14. apríl skilaði mörgum skemmtilegum seinnipörtum. Sigurbotninn á Haukur Þorgeirsson, bæði frumlegan, vel ortan og bráðskemmtilegan! Hann hlýtur að launum bók Þorsteins Valdimarssonar, Ljóð.
Þannig var fyrri parturinn:
Bókalestur bætir flest,
burtu kvíða rekur.
Þannig var sigurbotn Hauks Þorgeirssonar:
Blautir gestir bölva mest,
bókasafnið lekur!
Dómnefnd færir einnig Ægi Geirdal lof fyrir fjölda botna og Stefáni Grímssyni fyrir frumlegan botn.
Ægir Geirdal:
Bætir minnið líka mest
mættur, dæmist sekur.
-
Og í minni fast er fest,
flestu framar tekur.
-
Mömmulestur met ég mest,
málkennd okkur vekur.
-
Alltaf það sem man ég mest
myrkrið burtu hrekur.
-
Eins og góðan fáir gest,
gleði okkur vekur.
-
Bætir minnið allra mest
máltíð burtu tekur.
Sigurlín Hermannsdóttir:
Finnst mér best við góðan gest
að gleði hjá mér vekur.
Hjördís Vilhjálmsdóttir:
Lestrarhestur kætir best
gleði víða vekur.
Stefán Grímsson:
BÆKUR, LES. ÉG. ALDREI
SEM. FIRR





