Lindasafn, Lindaskóla, Núpalind 7, 201 Kópavogi, s: 564-0621, lindasafn@kopavogur.is
Flýtilyklar
Dregið í sumarlestri 2011

Nú er lokið námskeiðinu Sumarlestur á Bókasafni Kópavogs og Lindasafni en hann hefur staðið yfir frá júníbyrjun. Þetta námskeið hefur verið í boði á Bókasafninu í mörg sumur.
Sumarlestrinum er þannig háttað að börn á aldrinum 6-12 ára skrá sig til þátttöku og fá þá blað sem þau skrifa á hvaða bækur þau lesa og blaðsíðufjölda bókar. Þegar þau skila bókunum fá þau stimpil og að auki happamiða fyrir hverja lesna bók. Þau fylla miðann út og setja í tunnu í Barnadeildinni.
Í lok námskeiðsins er dregið úr öllum miðunum og þeir heppnu fá vinning, en allir þátttakendur fá smá glaðning. Þetta námskeið er ætlað til þess að börnin viðhaldi þeirri lestrarleikni sem þau tileinka sér að vetrinum í skólanum.
Þátttaka var góð, 166 börn í Aðalsafni og 40 í Lindasafni, eða alls 206 börn og það var mikið í tunnunni þegar dregið var úr miðunum miðvikudaginn 24. ágúst. Vinningarnir voru fallegar línustrikaðar bækur og pennar, svo nú geta börnin skrifað sín eigin ævintýri, eða hvað sem þeim dettur í hug. Að auki fengu allir buddu sem hægt er að festa á úlnliðinn og geyma í peninga, strætómiða og þess háttar.
Þeir sem voru dregnir út eru:
- Andrea Ósk 7 ára
- Arnaldur 7 ára
- Aron Ingi 7 ára
- Hildur Björk 8 ára
- Karen Dís 9 ára
- Katrín 8 ára
- Lára Ruth 8 ára
- Mikael 7 ára
- Ragnheiður 6 ára
- Unnur Marín 11 ára
- Þorsteinn Hilmir 7 ára
- Þórdís Helga 10 ára
Starfsfólk Bókasafnsins óskar þeim til hamingju og þakkar öllum krökkunum fyrir þátttökuna í sumar!





