Barnadeild - 28. nóvember 2011

Mynd: http://www.grapevine.is/Features/ReadArticle/the-encyclopaedia-of-icelandic-holidays
Krökkum á leikskólaaldri er boðið á jólaævintýri í Safnahúsinu, dagana 28. nóv.–2. des. og 5.–9. des.
Starfsfólk Bókasafns Kópavogs og Náttúrufræðistofu Kópavogs leiðir krakkana í allan sannleik um Jólaköttinn.
Ævintýrið er í máli og myndum.
Fræðst er um náttúru Jólakattarins, slóð Jólakattarins er rakin og heilsað upp á hann og lesin skemmtileg jólasaga.
Boðið er upp á ævintýratíma kl. 10 og kl. 11. Heimsóknin varir í um 45 mínútur.
Vinsamlega pantið tíma í síma 570 0450.
Með jólakveðjum,
Starfsfólk Bókasafns og Náttúrufræðistofu