Bókasafn Kópavogs

Jólaljósin tendruð í Kópavogi Ljósin verða tendruð á vinabæjarjólatré Kópavogsbúa á Hálsatorgi, laugardaginn 26. nóvember, kl. 16:00. Jólatréð er gjöf

Jólaljósin tendruđ í Kópavogi

Ljósin verða tendruð á vinabæjarjólatré Kópavogsbúa á Hálsatorgi, laugardaginn 26. nóvember, kl. 16:00. Jólatréð er gjöf bæjarbúa í Norrköping í Svíþjóð til Kópavogsbúa. Sendiherra Svíþjóðar, Anders Ljunggren, afhendir tréð og Hjálmar Hjálmarsson, forseti bæjarstjórnar, tekur á móti því fyrir hönd bæjarins.

Skólahljómsveit Kópavogs og Samkór Kópavogs spila og syngja jólalög og nokkrir jólasveinar taka forskot á sæluna og kíkja í heimsókn.

Að venju verður fjölbreytt dagskrá í næsta nágrenni í tilefni dagsins. Jólakötturinn verður m.a. á kreiki í Bókasafni Kópavogs og dýrin í Náttúrufræðistofu Kópavogs skrýðast jólabúningi. Laufabrauðsgerð fer fram í Gjábakka og listamenn í miðbæ Kópavogs opna vinnustofur sínar upp á gátt.
 
Nánari upplýsingar um dagskrána má finna á vef Kópavogsbæjar.



Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf