Viðburðir og sýningar - 03. maí 2011
Kópavogsdagar, menningarhátíð Kópavogs
hefst laugardaginn 7. maí og stendur í eina viku. Á bókasafninu verða í boði erindi um vorverk í garðinum, ævintýraferð,
flugdrekadagur o.fl.
Dagskrá bókasafnsins:
- Laugardagur 7. maí. kl. 14:00
Vorverk í garðinum: Steinn Kárason garðyrkjufræðingur heldur erindi í Kórnum.
- Alla dagana 9. maí til 13. maí kl. 10:00 og 11:00
Ævintýraferð: Ævintýri fyrir leikskóla um Möggu melrakka í
boði Náttúrufræðistofu og Bókasafns. Tímapantanir í síma 570-0450.
- Fimmtudagur 12. maí kl. 10:00-12:00
Flugdrekadagur fyrir krakka: Allir krakkar velkomnir sem vilja koma með flugdrekana sína á túnið
við Safnahús.
- Leyndarmálaveggur: Þeir sem vilja geta skrifað leyndarmál á miða og sett í leyndarmálakassa út maí.
- Myndlistarsýning á 1. hæð: Gunnar Gunnarson sýnir verk sín til 31.maí.
Verið velkomin á Kópavogsdaga á Bókasafni Kópavogs!