Sýningar - 22. október 2011
Stopp leikhópurinn sýnir barnaleikritið Hans klaufa laugardaginn 22. október á Lindasafni kl. 13:00 og í Kórnum á Aðalsafni kl. 15:00.
Leikritið tekur u.þ.b. hálftíma í flutningi. Enginn aðgangseyrir. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir!
Þetta uppbyggjandi ævintýri fjallar um Hans Klaufa og bræður hans sem eru á leið til konungshallarinnar að biðja kóngsdóttur.
Hún hefur nefnilega látið þau boð út ganga að sá sem kemur bestu orði fyrir sig hlýtur hana fyrir konu og síðast en ekki
síst allt konungsdæmið. Þegar Hans Klaufi fréttir þetta ætlar hann sko ekki að missa af neinu. Hann ætlar líka til konungshallarinnar að
biðja kóngsdóttur.
