Heiti pottur - 29. apríl 2011
Nafnlaus leyndarmál hafa byrjað að hrannast upp á Bókasafni Kópavogs. Á 2. hæð safnsins hefur verið komið fyrir póstkassa sem
hægt er að læða nafnlausum játningum í og á veggnum við hlið hans eru þau svo birt.
Á vefsíðunni
PostSecret hafa um langa hríð vikulega verið birt póstkort sem innihalda leyndarmál sendendanna.
Sumt varðar hugsanir, annað gjörðir og enn annað eru leyndarmál sem viðkomandi var treyst fyrir en getur ekki setið á lengur.
Í maímánuði verður gerð tilraun með játningavegg í þessum anda á Bókasafni Kópavogs - þeir sem kjósa
að leggja fram leyndarmál stinga þeim í póstkassann og daginn eftir verða játningarnar komnar upp á vegg.