Sýningar - 29. september 2011
Greta Pálsdóttir sýnir 1. sept. - 14. okt. 2011 olíumálverk á fyrstu hæð Bókasafns Kópavogs. Hún hefur tekið
þátt í ýmsum námskeiðum en síðastliðin 8 ár hefur hún sótt námskeið í módelmálun hjá
Myndlistarskóla Kópavogs, auk sumarnámskeiða. Greta hefur tekið þátt í sýningum skólans og samsýningum
Frístundamálarafélagsins.

Þeir sem hafa áhuga á frekari upplýsingum eða vilja eignast einhverja af myndum Gretu er bent á að hafa samband við hana í síma 554-2542
eða 848-2438.
Sýningin er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins: mánud. - fimmtud. kl. 10-19, föstud. kl. 11-17 og laugard. kl. 13-17.