Bókasafn Kópavogs

Myndlistarsýning Jóhönnu Stefánsdóttur Jóhanna Stefánsdóttir sýnir nú á 1. hæð Bókasafns Kópavogs 19 vatnslitamyndir málaðar á þessu ári. Jóhanna

Myndlistarsýning Jóhönnu Stefánsdóttur

Jóhanna Stefánsdóttir sýnir nú á 1. hæð Bókasafns Kópavogs 19 vatnslitamyndir málaðar á þessu ári. Jóhanna útskrifaðist frá Myndlistar og handíðaskóla Íslands 1990. Þetta er þriðja einkasýning Jóhönnu en hún hefur einnig tekið þátt í samsýningum. Myndirnar eru til sölu.

Sýningin er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins: mánud. - fimmtud. kl. 10-19, föstud. kl. 11-17 og laugard. kl. 13-17.

Þess má einnig geta að á Náttúrufræðistofu Kópavogs stendur nú yfir sýningin Eyjafjarðarfossar. Á sýningunni eru ljósmyndir af 42 fossum í eyfirskum vatnsföllum eftir Svavar Alfreð Jónsson, áhugaljósmyndara og prest við Akureyrarkirkju.



Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf