Bókasafn Kópavogs

Myndlistarsýning Maju Loebell Maja Loebell sýnir 18. júlí - 26 ágúst 2011 vatnslita- og olíumyndir á fyrstu hæð Bókasafns Kópavogs. Hún hefur sótt

Myndlistarsýning Maju Loebell

Myndlistarmaðurinn Maja Loebell
Myndlistarmaðurinn Maja Loebell
Maja Loebell sýnir 18. júlí - 26 ágúst 2011 vatnslita- og olíumyndir á fyrstu hæð Bókasafns Kópavogs. Hún hefur sótt myndlistarnámskeið víða, en aðallega í Myndlistarskóla Kópavogs síðan 1997.
Olíumyndirnar á sýningunni eru serían Litrík smáatriði við veginn. Þær eru málaðar að hluta á staðnum en kláraðar heima með hliðsjón af ljósmynd. Vatnslitamyndirnar urðu til á Álftanesi (á Hliði) og Kópavogsbrúin er máluð eftir minni og tilfinningu enda hluti af daglegri leið Maju.
Þeim sem hafa áhuga á að eignast einhverja af myndum Maju Loebell er bent á að hafa samband við hana í síma 5641469 eða í gegnum netfangið: majalo@mr.is.




Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf