Ritsmiðjan - 30. maí 2011
Dagana 20. til 22. júní verður Ritsmiðja fyrir 9 – 12 ára börn á Bókasafninu í Hamraborg. Þátttaka er ókeypis,
en fjöldi þátttakenda takmarkast við 12 börn.
Kennd verður ritlist og svolítið um myndskreytingar. Tíminn er kl. 10-12 mánudaginn 20. og miðvikudaginn 22. júní, en þriðjudaginn 21.
júní vinna börnin sjálf, og geta fengið aðstoð ef þau vinna á safninu.
Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir 15. júní á þetta námskeið með því að hafa samband á Bókasafnið,
annað hvort með því að hringja í síma 570 0450 eða senda tölvupóst á
bokasafn@kopavogur.is.