Bókasafn Kópavogs

Ritlistarnámskeið og sumarlestur Dagana 20. til 22. júní verður Ritsmiðja fyrir 9-12 ára börn á Bókasafninu í Hamraborg. Þátttaka er ókeypis, en  fjöldi

Ritlistarnámskeið og sumarlestur

Dagana 20. til 22. júní verður Ritsmiðja fyrir 9-12 ára börn á Bókasafninu í Hamraborg. Þátttaka er ókeypis, en  fjöldi þátttakenda takmarkast við 12 börn. Sumarlestur fyrir 6-12 ára börn verður á Bókasafninu frá 1. júní til 24. ágúst. Börnin skrá sig þegar þau koma á safnið og fá þá bækling sem þau skrá í hvað þau lesa.

Í Ritsmiðjunni verður kennd verður ritlist og svolítið um myndskreytingar. Tíminn er kl. 10-12 mánudaginn 20. og miðvikudaginn 22. júní, en þriðjudaginn 21. júní vinna börnin sjálf, og geta fengið aðstoð ef þau vinna á safninu.

Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir 15. júní á þetta námskeið með því að hafa samband á Bókasafnið, annað hvort með því að hringja í síma 570 0450 eða senda tölvupóst á bokasafn@kopavogur.is.

Í Sumarlestrinum skila börnin bókunum eftir lestur og fá þau happamiða fyrir hverja bók. Þau fylla út miðann og setja hann í til þess gerða tunnu sem er við afgreiðslu í barnadeild. 24. ágúst verður dregið úr miðunum og nokkrir heppnir fá vinning. Allir sem taka þátt eiga möguleika.

Lestur er undirstaða alls náms. Sumarlestur hvetur börnin til að halda áfram að æfa þá lestrarleikni sem þau tileinka sér í skólanum að vetrinum. Þannig koma  þau vel undirbúin til leiks þegar skólinn byrjar aftur í haust.


Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf