Bókasafn Kópavogs

Skrifaðu skáldsögu í nóvember Bókasafn Kópavogs í Hamraborg er eitt af opinberum samstarfsbókasöfnum átaksins National Novel Writing Month (NaNoWriMo),

Skrifađu skáldsögu í nóvember

Bókasafn Kópavogs í Hamraborg er eitt af opinberum samstarfsbókasöfnum átaksins National Novel Writing Month (NaNoWriMo), hið eina slíka á Íslandi. Þátttakendur freista þess að skrifa 50.000 orða uppkast að skáldsögu á þrjátíu dögum nóvembermánaðar.

Á safninu verða opnir fundir fyrir þátttakendur verkefnisins á fimmtudögum kl. 17-19 í nóvember, þar sem þeim gefst færi á því að skrifa saman og veita þannig hver öðrum stuðning og hvatningu. Að auki verða samskriftir kl. 13-17 laugardaginn 26. nóvember en síðasta helgi mánaðarins getur skorið milli feigs og ófeigs þegar kemur að því að ná lokatakmarkinu.

Átakið er óformlegt – það er engin krafa um skráningu, ekkert þátttökugjald er innheimt, ekki er gerð krafa um neina fyrri reynslu af skrifum og enginn fylgist með árangri rithöfundanna nema þeir sjálfir. Markmiðið er að þátttakendur skori sjálfa sig á hólm, læri eitthvað nýtt og kynnist vonandi skemmtilegu fólki, en samfélagið sem myndast þessa nóvemberdaga er engu líkt.

Bókasafn Kópavogs hefur undanfarin ár lagt sérstaka áherslu á ritlist í störfum sínum, bæði með því að halda úti ritsmiðju og með því að byggja upp fræðibókakost um fagið.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Þórarinsdóttir á Bókasafni Kópavogs, s. 570-0450, arndisth@kopavogur.is.


Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf