Barnadeild - 23. júní 2011
Sumarlestur fyrir 6-12 ára börn verður á Bókasafninu frá 1. júní til 24. ágúst. Börnin skrá sig þegar þau
koma á safnið og fá þá bækling sem þau skrá í hvað þau lesa.
Börnin skila svo bókunum eftir lestur og fá happamiða fyrir hverja bók. Þau fylla út miðann og setja hann í til þess gerða
tunnu sem er við afgreiðslu í barnadeild. 24. ágúst verður dregið úr miðunum og nokkrir heppnir fá vinning. Allir sem taka þátt
eiga möguleika.
Lestur er undirstaða alls náms. Sumarlestur hvetur börnin til að halda áfram að æfa þá lestrarleikni sem þau tileinka sér í
skólanum að vetrinum. Þannig koma þau vel undirbúin til leiks þegar skólinn byrjar aftur í haust.