Bókasafn Kópavogs

Umhverfis Reykjavík með Fersteini og Páli Föstudaginn 18. nóvember kynna þeir Guðmundur Steinn Gunnarsson og Páll Ivan Pálsson, tveir meðlima S.L.Á.T.U.R.

Umhverfis Reykjavík með Fersteini og Páli

Föstudaginn 18. nóvember kynna þeir Guðmundur Steinn Gunnarsson og Páll Ivan Pálsson, tveir meðlima S.L.Á.T.U.R. (Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík), nýlegar afurðir sínar í tónleika og upplestrarferð um höfuðborgarsvæðið.

Guðmundur Steinn gaf út hljómplötuna Horpma hjá Carrier Records í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári en Páll Ivan gaf út bókina Music: a Thought Instigator hjá Útúrdúr bókaforlaginu nú á dögunum.

Heildardagskráin er innan við hálftíma löng og samanstendur af stuttum og léttum atriðum í hálfgerðri revíu sem er hugsuð fyrir alla fjölskylduna, unga sem aldna.

Viðburðirnir í þessarri dagsferð fara fram á eftirtöldum stöðum, föstudaginn 18. nóvember:

14:00 Bókasafn Seltjarnarness

15:00 Eymundsson Suður-Kringlunni

16:00 Bókasafn Kópavogs

17:00 Bókasafn Hafnarfjarðar

Allir velkomnir!



Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf