Bókasafn Kópavogs

Vefsíða um Wilhelm Beckmann Einar Beckmann, sonur Wilhelms Beckmanns, hefur nú sett upp vefsíðu með fróðleik og upplýsingum um föður sinn. Þar er að finna

Vefsíða um Wilhelm Beckmann

Einar Beckmann, sonur Wilhelms Beckmanns, hefur nú sett upp vefsíðu með fróðleik og upplýsingum um föður sinn. Þar er að finna myndir af mörgum verka hans, bæði tréskurðarverkum, teikningum og veggspjöldum.

Einnig er þar að finna æviágrip hans og ýmislegt annað fróðlegt. Slóðin er þessi: http://www.beckmann-art.net/

Börn Wilhelms og frænka í Þýskalandi, hafa nú ánafnað Bókasafni Kópavogs verk hans og eru fáein þeirra til sýnis á Listvangi Bókasafnsins á 3. hæð. Þar á meðal er tréskurðarmyndin Kona, sem nýlega kom til landsins frá Þýskalandi.

Þá er nú til sölu í Bókasafninu endurprentun á veggspjaldi Wilhelms og kostar eitt þúsund krónur. Vert er einnig að vekja athygli á altaristöflunni sem Wilhelm gerði handa Kópavogskirkju en henni hefur nú verið komið fyrir í safnaðarheimili kirkjunnar í Hamraborg.



Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf