Lindasafn, Lindaskóla, Núpalind 7, 201 Kópavogi, s: 564-0621, lindasafn@kopavogur.is
Flýtilyklar
Barnadeild
Í barnadeild á 3. hæð er saman komið allt efni sem sérstaklega er ætlað börnum og unglingum. Þar er mikið úrval bóka fyrir
alla aldurshópa. Þarna eru sögur af öllu tagi, myndasögur og -blöð og myndabækur. Líka fræðibækur um alls konar efni, t.d.
dýr, hafið, himingeiminn fornöld og margt fleira. Einnig bækur á enskur og norðurlandamálum.
Þá er í barnadeild fjölbreytt úrval barnamynda á DVD og myndböndum og tónlist, leikir og fræðsluefni á diskum.
Í barnadeild fer fram ýmislegt barnastarf, svo sem sögustundir fyrir 3ja-6 ára að vetrinum, sumarlestur á sumrin, bangsadagsgetraun í október og
margt fleira sem auglýst er þegar við á.
í barnadeild er hægt að láta fara vel um sig í þægilegum sófum með bók í hendi, eða tylla sér við borðið
þar sem Andrés önd og fleiri teiknimyndahetjur eiga sinn stað. Að maður nú ekki tali um Leshúsið þar sem notalegt er að kúra með
lesefni.
Svo er í barnadeildinni dót handa yngstu börnunum. Já það er eitthvað við allra hæfi í barnadeildinni!
Í afgreiðslunni í barnadeild er bæði hægt að fá lánuð gögn og skila.
Deildarstjóri Barndadeildar er Inga Kristjánsdóttir.
Námskeið í meðferð bóka fyrir börn
Í Barnadeildinni er boðið upp á námskeið í meðferð bóka fyrir leikskólabörn á
aldrinum 4ra–5 ára. Námskeiðið gengur út á að ganga vel um á bókasafni, fara vel með bækur og hvað þarf
að gera til að þær haldist heilar og hreinar.
Sýnt er hvað er framhlið, bakhlið og kjölur og hve mikilvægur hann er, hvernig á að fletta og leggja frá sér bók. Svo er lesin saga þar sem þessi atriði koma fyrir. Í lokin taka allir smá próf og fá viðurkenningarskjal með nafni sínu.
Umsjón með námskeiðinu hefur deildarstjóri Barnadeildar, Inga Kristjánsdóttir.





