Lindasafn, Lindaskóla, Núpalind 7, 201 Kópavogi, s: 564-0621, lindasafn@kopavogur.is
Flýtilyklar
Beckmanssstofa
Börn og
bróðurdóttir Wilhelms Ernst Beckmann, tréskurðarlistamanns og fyrsta bæjarlistamanns Kópavogs, færðu í júlí 2010
Bókasafni Kópavogs að gjöf listaverk, skartgripi, málverk og bækur sem áður voru í eigu listamannsins. Hrafn Andrés Harðarson
bæjarbókavörður tók á móti gjafabréfi úr hendi gefenda við hátíðlega athöfn á bókasafninu.
Munirnir verða í framtíðinni til sýnis í Beckmannsstofu á 3. hæð bókasafnsins. Hluti þeirra er afhentur strax en það sem
eftir er við fráfall gefenda.
Ævi Beckmanns
Wilhelm Ernst Beckmann fæddist 5. febrúar 1909 í Hamborg en flúði Þýskaland nasismans og kom til Íslands árið 1935. Hann settist
hér að og kvæntist íslenskri konu, Valdísi Einarsdóttur, og átti með henni tvö börn, Einar og Hrefnu.
Wilhelm bjó síðustu
æviár sín í Kópavogi en lést 11. maí 1965. Eftir hann eru verk í nokkrum kirkjum landsins og er eitt þeirra , glæsileg altaristafla,
í Safnaðarheimili Kópavogskirkju.
Wilhelm hóf nám í tréskurði og höggmyndalist aðeins fjórtán ára gamall hjá kunnum þýskum meistara í
Hamborg, Karl Olde. Seinna stundaði hann nám við Konunglegu listaakademíuna í Kaupmannahöfn. Fyrstu árin sín á Íslandi vann hann m.a.
á verkstæði Ríkarðs Jónssonar myndskera en setti svo upp sína eigin vinnustofu á Laugavegi 100. Hann vann þar að tréskurði og
bjó til listmuni til tækifærisgjafa.
Dóttir hans Hrefna býr á Íslandi en sonur hans Einar hefur búið í Ástralíu í fjörutíu ár. Þau
ásamt bróðurdótturinni, Moiken Steinberg, eru hér á landi til að veita Bókasafni Kópavogs gjöfina til minningar um
listamanninn.
Við athöfnina voru einnig viðstödd Guðrún Pálsdóttir bæjarstjóri, Hafsteinn Karlsson, formaður Lista- og menningarráðs,
Sigurður Arnarson sóknarprestur í Kársnesprestakalli, Kathrin Gegner frá Þýska sendiráðinu og fleiri góðir gestir. Boðið var
upp á kaffi og kleinur en eftir það fór hópurinn í safnaðarheimili Kópavogskirkju og skoðaði altaristöfluna sem listamaðurinn gaf
söfnuðinum við vígslu kirkjunnar árið 1964.
Veggspjald Beckmanns
Eftirprentun af einu veggspjalda Wilhelms Ernsts Beckmanns frá 4. áratug síðustu aldar er til sölu á Bókasafni Kópavogs, í Héraðsskjalasafni Kópavogs og víðar og kostar eitt þúsund krónur.
Vefsíða um Beckmann
Einar Beckmann, sonur Wilhelms Beckmanns, hefur nú sett upp vefsíðu með fróðleik og upplýsingum um föður sinn. Þar er að finna myndir af mörgum verka hans, bæði tréskurðarverkum, teikningum og veggspjöldum.
Einnig er þar að finna æviágrip hans og ýmislegt annað fróðlegt.





