Bækur og annað safnaefni Bókasafns Kópavogs og
Lindasafns, útibús Bókasafns
Kópavogs í Lindaskóla, er lánað gegn framvísun bókasafnsskírteinis.
Við kaup á skírteini ber
að sýna persónuskilríki. Gildistími skírteinis er eitt ár í senn.
Börn og unglingar yngri en 18 ára,
ellilífeyrisþegar og öryrkjar fá skírteini
endurgjaldslaust.
Atvinnulausir fá skírteini til 3 mánaða endurgjaldslaust gegn vottorði frá Kópavogsbæ.
Verð á skírteinum fyrir aðra fer eftir gjaldskrá hverju sinni.
Börn og unglingar yngri en 18 ára þurfa
skriflegt samþykki foreldris eða forráðamanns.
Ábyrgðareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu safnanna í Hamraborg auk Lindasafns.
Skírteini keypt í Bókasafni Kópavogs eða Lindasafni er einnig hægt að nota í svokölluðu
Millireykjasamstarfi; í Bókasafni Hafnarfjarðar, Bókasafni Garðabæjar og Bókasafni Álftaness, auk Lindasafns.
Hægt er að nota skírteinin í flestum öðrum bókasöfnum á Íslandi en borga verður árgjald
í hverju safni fyrir sig.
Glati lánþegi skírteini ber honum að tilkynna safninu það hið fyrsta.
Nýtt skírteini fyrir glatað þarf
að greiða fyrir samkvæmt gjaldskrá.