Í Djúpinu á 1. hæð safnsins er að finna flestar fræðibækur safnsins, efni sem tengist daglegu lífi mannsins og umhverfi hans í
sinni víðustu mynd, allt frá hinu smæsta til hins stærsta.
Heimspeki, trúarbrögð, félagsvísindi, sálfræði, tungumál, náttúruvísindi, dýrafræði,
heilsufræði, verkfræði, sjávarútvegur, iðnaður, garðyrkja, matreiðsla, heimili, barnauppeldi, húshald, tíska, allt þetta og meira
til leynist í Djúpinu.
Í afgreiðslunni í Djúpinu er hægt að fá ítarlegri upplýsingar og þar er bæði hægt að fá lánuð
gögn og skila.
Hér eru nokkrir tenglar á vefsíður sem tengjast efni deildarinnar:
Myndir úr Djúpinu.