Bókasafn Kópavogs

Í Heita pottinum á 2. hæð mætast ólíkar bókmenntagreinar svo að úr verður ómótstæðileg blanda hins gamla og hins nýja, hins hefðbundna og hins

Heiti pottur

Í Heita pottinum á 2. hæð mætast ólíkar bókmenntagreinar svo að úr verður ómótstæðileg blanda hins gamla og hins nýja, hins hefðbundna og hins framúrstefnulega.

Í deildinni má finna myndarlegt safn myndasagna, bæði vestrænna og austrænna. Fantasíur- og vísindaskáldskapur er til bæði á ensku og íslensku í miklu úrvali og tímarit sem höfða til ungs fólks eru í úrvali í notalegum lestrarkróki.

Skáld hafa löngum mótað starf Bókasafnsins, en fyrsti bæjarbókavörður Kópavogs var Jón úr Vör. Því er ljóðakostur safnsins mun betri en gengur og gerist, og er hluti hans aðgengilegur í Heita pottinum.

Í pottinum má líka finna leikrit, íslenskar fornbókmenntir, og bækur um bókmenntafræði og ritlist.
Hljóðbókakostur safnsins er líka hýstur í Heita pottinum, en hann er á CD diskum, MP3 diskum og hljóðsnældum.

Deildarstjóri Heita potts er Arndís Þórarinsdóttir.

Myndir úr Heita potti.


Mynd augnabliksins

Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf