Bókasafn Kópavogs

Þann 11. maí 2002 var Bókasafn Kópavogs opnað í nýju og glæsilegu húsnæði, Safnahúsi Kópavogs, á þremur hæðum og um 1400 fermetrum. Á 1. hæð

Safnahús Kópavogs

Þann 11. maí 2002 var Bókasafn Kópavogs opnað í nýju og glæsilegu húsnæði, Safnahúsi Kópavogs, á þremur hæðum og um 1400 fermetrum.

Á 1. hæð (jarðhæð) eru Djúpið og Kórinn - fjönotasalur sem tekur um 60 manns í sæti. Á 1. hæð Safnahússins er einnig Náttúrufræðistofa Kópavogs.

Aðalútlánasalur og -afgreiðla safnsins er á 2. hæð (miðhæð) en auk hennar eru afgreiðsluborð á 1. hæð og í barnadeild á 3. hæð. Vélbókavörðurinn Samúel er einnig með aðstöðu á 2. hæð.

Tímaritadeild og kaffistofa er miðsvæðis á 3. hæð (efstu hæð). Þar er gengt út á verönd með glæsilegu útsýni til suðurs, vesturs og norðurs, þar sem hægt er að setjast niður og njóta veðurblíðunnar þegar hún gefst. Kaffi er í boði gegn vægu gjaldi. 

Lesaðstaða er í básum og við borð á víð og dreif um safnið. Sex tölvur eru til afnota fyrir almenning á 2. hæð gegn vægu gjaldi. Einnig eru á öllum hæðum tölvur til leitar í safnkosti.

Lyfta er í húsinu og snyrtingar eru á 1. og 3. hæð.

Safnkynningar

Bókasafn Kópavogs býður upp á safnkynningu fyrir hvern sem þess óskar. Tilgangurinn með safnkynningum er að fólk kynnist almenningsbókasafninu sínu svo allir geti nýtt sér það sem best í leik, námi og starfi.

Allir eru velkomnir í Safnahús Kópavogs!

Mynd augnabliksins

Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf