Bókasafn Kópavogs

Hana nú Bókmenntaklúbburinn Hana nú hefur nú starfað í all mörg ár og eru á hverjum fundi um 15 til 25 félagar. Þeir eru hálfsmánaðarlega á miðvikudögum,

Klúbbar og námskeið

Hana nú

Bókmenntaklúbburinn Hana nú hefur nú starfað í all mörg ár og eru á hverjum fundi um 15 til 25 félagar. Þeir eru hálfsmánaðarlega á miðvikudögum, afslappaðir og frjálslegir. Fundir hefjast kl. 19:00 og standa yfir í einn og hálfan tíma og eru alltaf búnir fyrir kl. 20:30.

Stundum koma rithöfundar og skáld í heimsókn, en einnig bókmenntafræðingar. Allir eru velkomnir – engin skilyrði – aðeins áhugi á bókum og lestri. Bókmenntaklúbburinn er lýðræðislegur og allar hugmyndir vel þegnar!

Umsjónarmaður Hana nú er Hrafn A. Harðarson. Síminn hjá honum er 570-0455.

Hér er grein um Hana nú í Morgunblaðinu frá 1997 eftir Hrafn Sæmundsson.

Námskeið í meðferð bóka fyrir börn

Í Barnadeildinni er boðið upp á námskeið í meðferð bóka fyrir leikskólabörn á aldrinum 4ra–5 ára. Námskeiðið gengur út á að ganga vel um á bókasafni, fara vel með bækur og hvað þarf að gera til að þær haldist heilar og hreinar. 

Sýnt er hvað er framhlið, bakhlið og kjölur og hve mikilvægur hann er, hvernig á að fletta og leggja frá sér bók. Svo er lesin saga þar sem þessi atriði koma fyrir. Í lokin taka allir smá próf og fá viðurkenningarskjal með nafni sínu.

Umsjón með námskeiðinu hefur deildarstjóri Barnadeildar, Inga Kristjánsdóttir.

Mynd augnabliksins

Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf