Einungis er hægt að fá safnefni lánað gegn framvísun eigin bókasafnsskírteinis.
Lánþegi (eða
ábyrgðarmaður barns) ber ábyrgð á því safnefni sem tekið er að láni gegn framvísun skírteinis hans.
Glatist eða skemmist safnefni í vörslu lánþega greiðir hann andvirði þess samkvæmt gjaldskrá.
Lánstími safnefnis er venjulega 30 dagar. Sé hann styttri er þess sérstaklega getið á útlánakvittun og/eða safnaefni.
Fyrir hvern umfram dag greiðist sekt samkvæmt gjaldskrá.
Lán má endurnýja ef engin frátekt liggur fyrir á safnaefninu.
Hægt er að endurnýja lán
í gegnum síma, tölvupóst og á safninu (allt að fjórum sinnum) eða á
Gegni.is (allt að tvisvar sinnum). Endurnýja má lán á gjaldskyldu efni en
greiða þarf nýtt
útlánagjald.