Bókasafn Kópavogs

Á öllum hæðum safnsins er aðstaða til lestrar: Í Djúpinu á 1. hæð eru fjórir lesbásar auk sófasetts og sófaborðs. Í aðalútlánasal á 2. hæð eru sjö

Lesaðstaða

Á öllum hæðum safnsins er aðstaða til lestrar:

Í Djúpinu á 1. hæð eru fjórir lesbásar auk sófasetts og sófaborðs.

Í aðalútlánasal á 2. hæð eru sjö lesbásar, auk borða og stóla á víð og dreif.

Í Heita potti á 2. hæð eru sófi, stólar og borð.

Í Listvangi á 3. hæð er stórt borð og stólar, tilvalið til hópavinnu, auk sófasetts. Við suðurglugga er hátt borð með fjórum barstólum. Þar er upplagt að sitja með fartölvu og njóta fagurs útsýnis yfir Borgarholt og Kópavogskirkju.

Í Barnadeild á 3. hæð eru borð og stólar fyrir yngstu kynslóðina til að lesa við auk sófa og sófaborðs fyrir þá sem eldri eru.

Öllum er velkomið að nota og njóta lesaðstöðunnar í Bókasafni Kópavogs!

Mynd augnabliksins

Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf