Bókasafn Kópavogs

Lindasafn Lindaskóla Núpalind 7 201 Kópavogi               sími: 564-0621               lindasafn@kopavogur.is Gengið er inn um aðaldyr

Lindasafn

Lindasafn
Lindaskóla
Núpalind 7
201 Kópavogi
              sími: 564-0621
              lindasafn@kopavogur.is



Gengið er inn um aðaldyr Lindaskóla, Núpalindarmegin, og þaðan upp á 2. hæð.

Kort.

Afgreiðslutími - vetur
1. sept. til 31. maí

  • mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 14:00–19:00
  • föstudaga kl. 14:00–17:00
  • laugardaga kl. 11:00–14:00 (lokað 1. maí til 30. september)
Afgreiðslutími - sumar
1. júní til 31. ágúst

  • mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 12:00-18:00
  • föstudaga kl. 12:00-16:00

Lindasafn er útibú frá Bókasafni Kópavogs. Lindasafn er rekið í samstarfi við skólasafn Lindaskóla og er staðsett á sama stað, á annarri hæð skólans.

Auk bóka og tímarita eru hljóðbækur, myndbönd, mynddiskar, myndasögur og tungumálanámskeið lánuð út. Dagblöðin eru keypt á safnið og er góð aðstaða til að lesa. Safnkosturinn er nú um 25.000 eintök.

Sögustundir í Lindasafni
Í Lindasafni eru sögustundir fyrir 3-6 ára börn á þriðjudögum kl. 10:00 frá 1. október til 30. apríl. Í sögustundum er lesið fyrir börnin, þeim sagðar sögur og farið með vísur og þulur. Einnig er spjallað við börnin um lesefnið.

Forstöðumaður Lindasafns er Sigrún Guðnadóttir.

Viðkomustaður strætisvagna:

  • Leið 2 stöðvar á Fífuhvammsvegi v/ Lindir
  • Leið 28 stöðvar á Lindarvegi við þjónustukjarna

Vefsíða Lindasafns.

Mynd augnabliksins

Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf