Á Listvangi á 3. hæð má finna efni sem tengist listum á einn eða annan hátt, s.s. myndlist, tónlist, höggmyndalist, byggingalist,
hönnun, leiklist, grafík, dansi og ljósmyndun.
Einnig er þar að finna bækur og tímarit um íþróttir, spil, leiki og sportveiðar. Myndarlegt úrval efnis um handavinnu og föndur er til
á bókasafninu og er það staðsett á Listvangi.
Á Listvangi er einnig tónlistardeild safnsins, geisladiskar og mynddiskar í miklu úrvali sem lánast út gegn gjaldi í 7 daga í senn.
Deildarstjóri Listvangs er Ragna Guðmundsdóttir.
Hér eru nokkrir tenglar á vefsíður sem tengjast efni deildarinnar.
Myndir úr Listvangi.