Lánþegar Bókasafns Kópavogs og Lindasafns
fá lykilorð í afgreiðslu til að fá aðgang að
Mínum síðum á Gegni.is. Þar er hægt að
- Skoða útlánastöðu sína
- Skoða útlánasögu sína
- Endurnýja útlán
- Biðja um frátektir á efni sem er í útláni
- Breyta heimilisfangi sínu, símanúmerum og tölvupóstföngum
- Búa til lista yfir safnaefni sem leitað er að og vista, senda m. tölvupósti eða prenta út
Lánþegi notar sama lykilorð til að fá gögn lánuð og skoða útlánastöðu sína hverju sinni í
sjálfsafgreiðsluvélinni (
Samúel
vélbókavörður) á 2. hæð bókasafnsins.
Mikilvægt er að lánþegi breyti sjálfgefnu lykilorði til að koma í veg fyrir að óviðkomandi geti
skoðað útlánastöðu.