Með tilkomu Gegnis, bókasafnakerfis Landskerfa bókasafna, jukust til muna möguleikar á ýmiskonar samstarfi milli safna. Má þar t.d. nefna skráningu, útlán og
nýtingu safngagna.
Þessa möguleika hafa bókasöfnin í Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi nýtt í þeim tilgangi að
auka og bæta þjónustu við lánþega og veita þeim aðgengi að stærri og fjölbreyttari safnkosti.
Auk hefur þessi samvinna haft í för með sér sparnað og betri nýtingu á bókum og öðrum gögnum sem til eru í þessum
bókasöfnum. Þessa samvinnu köllum við Millireykjasamstarfið.
Íbúum Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Álftaness gefst því kostur á að kaupa eitt bókasafnskírteini sem gildir
sem aðgangsheimild að safnkosti allra ofnagreindra safna.
Lánþegum gefst því kostur á að nota sama skírteinið til að fá lánuð gögn í hinum bókasöfnunum án
frekara endurgjalds. Að öðru leyti hlíta þeir reglum þeirra safna sem lána þeim gögnin svo og gjaldská þeirra vegna vanskila og
útleigu á safngögnum t.d. myndböndum og tónlist.