Bókasafn Kópavogs

Hvað er millisafnalán? Þegar bókaverðir útvega rit sem bókasafnið á ekki, annað hvort bækur eða ljósrit af tímaritsgreinum frá öðrum söfnum. Í sumum

Millisafnalán

Hvað er millisafnalán?
  • Þegar bókaverðir útvega rit sem bókasafnið á ekki, annað hvort bækur eða ljósrit af tímaritsgreinum frá öðrum söfnum.
  • Í sumum tilvikum hægt að fá myndir og geisladiska lánaða frá öðrum bókasöfnum.
Hverjir geta fengið millisafnalán?
  • Þeir sem eiga gild bókasafnsskírteini er heimilt að nýta sér þessa þjónustu. Æskilegt er að notendur athugi sjálfir hvort ritið finnist á Leitir.is eða á Gegnir.is áður en beðið er um millisafnalán.
  • Bókasafn Kópavogs er þátttakandi í samstarfi um millisafnalán. Sé rit sem lánþega vanhagar um ekki fáanlegt hjá okkur er mögulegt að biðja um að fá það sent frá öðru safni (þetta á þó ekki við um almenningsbókasöfn innan höfuðborgarsvæðisins). Fyrir þessa þjónustu þarf lánþegi að greiða samkvæmt gjaldskrá.
  • Grunn- og framhaldsskólasöfn lána almennt ekki rit úr sínum safnkosti til almennings. Tekin er afstaða til þess í hverju tilviki hvort bók sé veitt í millisafnaláni. Í flestum tilvikum er hægt að fá ljósrit af greinum milli safna.
  • Sérfræðisöfn setja sínar eigin reglur varðandi útlán og millisafnalán. Hjá sumum söfnum getur notandi fengið bók að láni og mörg lána bækur í millisafnaláni. Í sumum tilvikum er þó einungis um lestrarsalslán að ræða. Í flestum tilvikum geta bókasöfn fengið ljósrit af greinum og í sumum söfnum er sú þjónusta gegn gjaldi.
Umsjón með millisafnalánum á Bókasafni Kópavogs hafa Jakobína Ólafsdóttir og Ragna Guðmundsdóttir. Símanúmer  upplýsingaþjónustu er 570-0450.

Mynd augnabliksins

Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf