Bókasafn Kópavogs
Hægt er að sækja um millisafnalán á Leitir.is og Gegnir.is
Þeir sem vilja fá millisafnalán í gegnum Bókasafn Kópavogs þurfa að vera skráðir sem
Millisafnalán á Leitir.is
Hægt er að sækja um millisafnalán á Leitir.is og Gegnir.is
- Þeir sem vilja fá millisafnalán í gegnum Bókasafn Kópavogs þurfa að vera skráðir sem millisafnalánaþegar hjá
safninu.
- Hafið samband við bókaverði í afgreiðslu eða hringið í síma 570 0450 varðandi það.
Þegar búið er að gera lánþega að notanda millisafnalána hjá Bókasafni
Kópavogs getur hann pantað millisafnalán á Leitir.is eða Gegnir.is.
- Lánþegar fara inn á Leitir.is eða Gegnir.is. Þar skrá þeir sig inn með kennitölu og lykilorði. Ef vandræði koma upp við innskráningu þá vinsamlega
hafið samband við bókaverði eða hringið í síma 570 0450.
- Þegar innskráningu er lokið er notandi kominn á Mínar síður. Þá er ritið, sem
lánþeginn vill fá í millisafnalán, fundið undir Leita, Ítarleg
leit eða Skipanaleit.
- Þegar það er fundið er ýtt á hnappinn Panta millisafnalán og við það koma upp upplýsingar um
ritið og eyðublað fyrir millisafnalán. Þar skal fylla út reiti sem eru merktir með stjörnu og að því loknu er ýtt á hnappinn
Panta.
Þá birtist tilkynning um að pöntunin hafi verið móttekin. Pöntunin berst til upplýsingaþjónustu bókasafnsins sem pantar
þá ritið hjá því bókasafni sem á ritið. Þegar ritið kemur svo á safnið er lánþega send tilkynning um
það.
- Ýtt er á hnappinn Panta millisafnalán.
- Ef um bók er að ræða skal slá inn höfund/ritstjóra, titil, útgáfustað, forlag og útgáfuár. Gott er að hafa ISBN
númer rits ef það er þekkt.
- Ef um tímarit er að ræða þarf að slá inn fullan titil tímarits eða staðlaða skammstöfun, ár, bindi, hefti, höfund, titil
greinar og blaðsíðutal.
Afgreiðslutími millisafnalána
- Í langflestum tilvikum eru rit komin frá innlendum söfnum innan tveggja til fimm sólarhringa en bíða þarf allt frá fimm til tíu
dögum, upp í nokkrar vikur eftir bókum erlendis frá.
- Hvert eintak sem fengið er frá bókasafni innanlands kostar 1000 kr.
- Millisafnalánin eru borguð þegar þau eru sótt.
Lánstími rita
- Algengasti lánstími frá innlendum og erlendum söfnum er þrjár til fjórar vikur. Bækur sem mikil eftirspurn er eftir má þó
yfirleitt ekki hafa nema í tvær vikur.
- Afar mikilvægt er að skilafrestur bóka sem fengnar eru með þessum hætti sé virtur. Í sumum tilfellum er hægt að fá
lánstíma framlengdan en það veltur á safninu sem á bókina og beiðni um slíkt þarf að hafa borist starfsfólki
millisafnalána áður en lánsfrestur rennur út.
Dagatal
« Maí 2013 »
| S | M | Þ | M | F | F | L |
| | 1 | 2 | 3 | 4 |
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
...
Veftré