Bókasafn Kópavogs

Bókasafn Kópavogs var fyrsta almenningsbókasafnið á Íslandi til að taka upp útlán á myndböndum árið 1978. Þetta voru sígildar kvikmyndir, þýskar fræðslu-

Nýir miðlar

Bókasafn Kópavogs var fyrsta almenningsbókasafnið á Íslandi til að taka upp útlán á myndböndum árið 1978. Þetta voru sígildar kvikmyndir, þýskar fræðslu- og menningarmyndir í gjöf frá Martin Beheim Gesellschaft í gegnum þýska sendiráðið sem einnig gaf safninu gott úrval þýskra bókmennta.

Geisladiskar með tónlist tóku við af vínilplötunum og mynddiskar tóku við af myndböndunum. Safnið hafði milligöngu um hljóðbókaþjónustu við blinda og sjónskerta Kópavogsbúa uns Blindrabókasafn Íslands flutti í Kópavoginn, í næsta hús við bókasafnið. Þá var sú þjónusta óþörf en gott samstarf tókst með Blindrabókasafninu, m.a. fékk það að láni bækur til að nota við innlestur á snældur og síðar á diska (Hrafn Andrés Harðarson, 2009).

Í dag eru hljóðbækur að færast yfir á mp3 diska og Bókasafnið einnig farið að framleiða hljóðbækur með efni af hlusta.is.

Mynd augnabliksins

Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf