Bókasafn Kópavogs

Bókasafn Kópavogs opnaði útibú 22. maí 2002 undir nafninu Lindasafn. Margrét Sigurgeirsdóttir var ráðin forstöðumaður til að annast allan almennan rekstur

Lindasafn

Bókasafn Kópavogs opnaði útibú 22. maí 2002 undir nafninu Lindasafn. Margrét Sigurgeirsdóttir var ráðin forstöðumaður til að annast allan almennan rekstur safnsins. Safnkosturinn er nú um 25.000 eintök en var við opnun um það bil 5.000 eintök. Auk bóka og tímarita eru hljóðbækur, myndbönd, mynddiskar, myndasögur og tungumálanámskeið lánuð út. Dagblöðin eru keypt á safnið og er góð aðstaða til að lesa.

Þetta er samsteypusafn með Lindaskóla og er því skólabókasafn til kl. 14.00 en eftir það almenningsbókasafn. Það er til húsa á annarri hæð Lindaskóla, í 190 fermetra sal. Ganga þarf um inngang Lindaskóla til að komast í safnið. Aðstaða starfsmanna er þröng. Safngögn Skólasafns og Lindasafns lánast jafnt út til skóla og almennings, með undantekningum. Tímarit, hljóðbækur og nýjar bækur Lindasafns lánast eingöngu út þegar Lindasafn er opið. Nemendabækur, kennsluefni, hljóðbækur og tónlist skólasafns lánast eingöngu á skólatíma.

Fyrstu árin einkenndust af baráttu við að fá viðskiptamenn að koma inn í skóla. Helsta viðmið Lindasafns hefur verið útlánatölur. Starfsmenn skólans og nemendur nýta sér safnið fram eftir degi. Þess vegna er erfitt að tala um aðsókn í Lindasafni og því ágætt að reikna upp gestafjölda út frá tölum úr Aðalsafni.

Frá upphafi virtust gestir vera að miklu leyti fólk sem tengdist skólanum sem nýttir sér safnið, foreldrar barna, nemendur og starfsmenn. Orðspor safnsins hefur spurst út og má sjá notendur úr nýjum hverfum Kópavogs þó að þeir megi teljast lítt áberandi miðað við þjónustusvæði.

Strangt tiltekið er þjónustusvæði Lindasafns póstnúmer 201 og 203 sem telja 13.621 (Hagstofa Íslands, 2009) einstakling í dag. Eftir alþjóðastöðlum er safnið bæði staðsett á röngum stað og of lítið. Almenningsbókasöfn eiga að vera í alfaraleið og samkvæmt stöðlum fyrir hverja 20 þúsund íbúa á safnið að vera 1.200 fermetrar, auk þess að aðgengi á að vera nálægt alfaraleið og í vissri fjarlægð (Guidelines for public libraries, 1986).

Hins vegar hafði verið á dagskrá að flytja Lindasafn upp í nýrri hverfi Kópavogs en það var tekið af dagskrá skömmu eftir hrunið í október 2008. Til að vera viðbúin flutningi og stærra húsnæði hefur uppbygging nýs bókasafns verið í gangi síðan árið 2006 og keypt gögn á útsölum með það í huga og einnig gögn, sem ekki er rými fyrir verið, sett í bókasafnsgrunninn undir heitinu Kórasafn. En safngögn Kórasafns eru skráð óaðgengileg.

Lindasafni er þröngur stakkur skorinn hvað varðar uppákomur vegna smæðar húsnæðis og sambúð við skóla. Það hefur boðið upp á sögustundir fyrir 3 til 6 ára börn frá fyrstu tíð. Þá lokar Skólasafnið fyrir skólann í eina klukkustund á milli kl. tíu og ellefu einu sinni í viku yfir veturinn. Hafa þær sögustundir mælst vel fyrir á meðal leikskóla. Lindasafn byrjaði strax á að bjóða upp á sögustundir síðdegis, kl. fjögur, en þær voru felldar niður vegna ónógrar þátttöku. Einnig er það fastur liður að lesa fyrir börn sex til níu ára sem eru í daggæslu í Lindaskóla en aðrir skólar hafa ekki nýtt sér það. Þá er alltaf boðið upp á brúðuleikhús einu sinni á ári við góðar undirtektir.

Mynd augnabliksins

Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf