Bókasafn Kópavogs

Elsti þáttur í barnastarfi safnsins eru sögustundir fyrir 3ja-6 ára börn. Þær byrjuðu árið 1981 og voru lengst af á sama tíma, miðvikudögum kl. 10:00 og

Starfsemi með börnum og unglingum

Elsti þáttur í barnastarfi safnsins eru sögustundir fyrir 3ja-6 ára börn. Þær byrjuðu árið 1981 og voru lengst af á sama tíma, miðvikudögum kl. 10:00 og 14.00, u.þ.b. 45 mínútna langar. Í seinni tíð er aðsóknin aðallega frá leikskólum að morgni.

Til að halda börnum að lestri á sumrin hefur bókasafnið frá árinu 1993 boðið upp á bókakynningar fyrir 8-12 ára börn í júnímánuði og var aðsókn ágæt fyrstu árin. Hin síðari ár fækkaði þátttakendum þar sem þetta efni skaraðist við annað framboð eins og sumarnámskeið. Þetta hefur þróast yfir í sumarlestur fyrir börn. Þau fá litla bók til að skrá í hvað þau lesa og svo fá stimpil fyrir hverja lesna bók. Að loknum sumarlestrinum fá þau svo viðurkenningarskjal.

Boðið hefur verið upp á aðventusögustundir í desember og í samstarfi við Náttúrufræðistofu eftir að Aðalsafnið flutti að Hamraborg 6a. Fyrst var daggæsludeildum grunnskólanna boðið, þ.e. 6-9 ára börnum. Einnig hafa kennarar í auknum mæli komið með bekki á þessum aldri til að hlýða á jólasögur og skoða nýju bækurnar sem streyma að á þessum árstíma. 27. október ár hvert er Alþjóðlegi bangsadagurinn haldinn hátíðlegur með getraun fyrir yngri börn allan októbermánuð sem endar með útdrætti á Bangsadaginn með sérstökum böngsum í vinning (Inga Kristjánsdóttir, 2009).

Dagur bókarinnar, 23. apríl, og Dagur íslenskrar tungu, 16. nóvember, eru haldnir hátíðlegir með ýmsum hætti. Til dæmis hafa grunnskólabörn tekið að sér að vera með uppákomur, þar á meðal lesið úr uppáhaldsbókunum sínum eða einhverjum völdum bókum.

Bókasafnið hefur reynt að bjóða upp á skapandi starf, sérstaklega að sumrinu. Ljóðasamkeppni fyrir börn og unglinga, sem almenningsbókasöfn landsins standa að, er einn liður í því. Áður en sú keppni komst á fót stóð Bókasafnið fyrir svona keppni meðal ungmenna í bænum og gaf svo út kver með afrakstrinum. Það hafa verið námskeið í rappi, vísna- og ljóðagerð, skartgripagerð og fleira, sýningar á myndverkum barna frá leikskólunum og frá börnum utan úr bæ. Bókasafnið hefur staðið fyrir brúðuleiksýningum fyrir börn.

Aðalsafn hefur góðan sal fyrir ýmiskonar uppákomur. Á vorin hefur Aðalsafn og Náttúrufræðistofa á árlegum Kópavogsdögum verið með uppákomur fyrir leikskólabörn sem fjalla um dýr og fugla á Norðurslóðum. Börnin kynnast viðkomandi dýri á Náttúrufræðastofu og heyra svo sögu af því á Bókasafninu. Kópavogsdagar tengjast afmæli Kópavogs sem er 11. maí og eru þá stofnanir bæjarins og fyrirtæki með uppákomur af ýmsu tagi. Annað sem hefur verið á dagskrá, til dæmis val á bestu barnabók ársins og getraunir og þrautir af ýmsu tagi. Venjulega koma margar réttar lausnir og veitt eru smá verðlaun eða viðurkenningar (Inga Kristjánsdóttir, 2009).

Aðalsafn er einungis með eina leikjatölvu fyrir börnin þeim að kostnaðarlausu, en aðrar tölvur eru 14 talsins. Lindasafn er með tólf tölvur sem er seldur aðgangur að. Bókasafnið býður upp á spil, tafl, púsl og annað slíkt til að nota á barnadeild (Inga Kristjánsdóttir, 2009).

Mynd augnabliksins

Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf