Lindasafn, Lindaskóla, Núpalind 7, 201 Kópavogi, s: 564-0621, lindasafn@kopavogur.is
Flýtilyklar
Tölvur og þráðlaust net
Heitur reitur - þráðlaust net
Bókasafn Kópavogs er svokallaður „Heitur reitur“ eða þráðlaus háhraða nettenging. Gestir bókasafnsins geta því komið með fartölvur sínar og
tengt þær þráðlaust við Internetið. Þessi þjónusta er ókeypis og öllum opin. Þráðlausa netið tengist ekki
prentara.
Netkaffi
Á safninu er hægt er gegn vægu gjaldi að kaupa aðgang að tölvu og komast á netið. Einnig er hægt að vinna í Word, Excel og
PowerPoint.
Keyptir eru inneignarmiðar með aðgangskóða sem gilda í 15 mín. (50 kr.), 30 mín. (100 kr.), 60 mín. (200 kr.) og 120 mín. (300 kr.). Einnig er hægt að biðja sérstaklega um að kaupa lengri tíma.
Tölvurnar eru tengdar við litaprentara. Hvert útprentað blað kostar 30 kr.
Leit að gögnum - Leitir.is
Á safninu geta gestir leitað og flett sjálfir upp í safnkostinum í fjórum tölvum sem tengjast Landskerfi bókasafna - Leitir.is. Bókaverðir eru eftir sem áður boðnir og búnir að
aðstoða.





