Lindasafn, Lindaskóla, Núpalind 7, 201 Kópavogi, s: 564-0621, lindasafn@kopavogur.is
Flýtilyklar
Um okkur
|
„Almenningsbókasöfn eru upplýsinga- og menningarstofnanir. Hlutverk þeirra er að veita fólki, bæði börnum og fullorðnum, greiðan aðgang að fjölbreyttum bókakosti og öðrum miðlunargögnum, þar á meðal tölvubúnaði og upplýsingum á tölvutæku formi. Þau skulu efla frjálsan og óheftan aðgang almennings að upplýsingum og þekkingarmiðlum. Söfnin skulu hvert á sínu þjónustusvæði kappkosta að vera menningarstarfi og atvinnulífi til styrktar og hafa tiltækar upplýsingar fyrir almenning um opinberar stofnanir og þjónustu. Markmið þeirra skal vera að efla íslenska tungu, stuðla að símenntun og örva lestraráhuga.“ |
Hér má sjá
hvernig lögin urðu til frá því frumvarp var lagt fram í desember 1996 og þar til lögin voru samþykkt í maí 1997.
Menningar- og þróunarráð, sem tilheyrir stjórnsýslusviði Kópavogsbæjar, fer í umboði bæjarstjórnar með menningarmál og stjórn bókasafnsins samkvæmt reglugerð.
Formaður menningar- og þróunarráðs er Hafsteinn Karlsson.
Deildarstjóri menningar-
og þróunardeildar er Arna Schram. Framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs er Páll Magnússon bæjarritari.
Bæjarbókavörður er Hrafn A. Harðarson. Hann hefur veitt Bókasafni Kópavogs forstöðu síðan 1977 þegar hann tók við af Jóni úr Vör sem var fyrsti bæjarbókavörður Kópavogs.
Bókasafnið er staðsett í Safnahúsi Kópavogs, Hamraborg 6a ásamt Náttúrufræðistofu Kópavogs.





