Lindasafn, Lindaskóla, Núpalind 7, 201 Kópavogi, s: 564-0621, lindasafn@kopavogur.is
Flýtilyklar
Um okkur
|
„Bókasöfn eru þjónustustofnanir sem starfa í þágu almennings og eigenda sinna og eru ekki rekin í
hagnaðarskyni. Sameiginlegt markmið bókasafna, sem undir lög þessi falla, er að veita aðgang að fjölbreyttu safnefni og upplýsingum á
mismunandi formi. Þau skulu efla menningar- og vísindastarfsemi, menntun, símenntun, atvinnulíf, íslenska tungu, ánægjulestur og
upplýsingalæsi. |
Hér má sjá hvernig lögin urðu
til frá því frumvarp var lagt fram í september 2012 og þar til lögin voru samþykkt í 19. desember 2012.
Lista- og menningarráð, sem tilheyrir stjórnsýslusviði Kópavogsbæjar, fer í umboði bæjarstjórnar með menningarmál og stjórn bókasafnsins samkvæmt reglugerð.
Formaður lista- og menningarráðs er Karen E. Halldórsdóttir.
Deildarstjóri menningar-
og þróunardeildar er Arna Schram. Framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs er Páll Magnússon bæjarritari.
Bæjarbókavörður er Hrafn A. Harðarson. Hann hefur veitt Bókasafni Kópavogs forstöðu síðan 1977 þegar hann tók við af Jóni úr Vör sem var fyrsti bæjarbókavörður Kópavogs.
Bókasafnið er staðsett í Safnahúsi Kópavogs, Hamraborg 6a ásamt Náttúrufræðistofu Kópavogs.





