Bókasafn Kópavogs

Upplýsingaþjónustan er á 2. hæð. Þar er hægt að fá upplýsingar um safnkostinn, auk þess sem aðstoð og ráðgjöf við leit að gögnum, heimildum og upplýsingum

Upplýsingaþjónusta

Upplýsingaþjónustan er á 2. hæð. Þar er hægt að fá upplýsingar um safnkostinn, auk þess sem aðstoð og ráðgjöf við leit að gögnum, heimildum og upplýsingum er veitt. Boðið er upp á sömu þjónustu í Lindasafni.

Upplýsingaleitin verður markvissari ef lánþeginn er á staðnum. Þá er hægt að bera beint undir hann niðurstöður leitarinnar.

Hægt er að senda fyrirspurnir til upplýsingaþjónustu á netfangið bokasafn@kopavogur.is og hringja í síma 570-0450. Einnig má senda fyrirspurnir til Lindasafns á netfangið lindasafn@kopavogur.is og hringja í síma 564-0621.

Upplýsingaþjónusta er viðskiptavinum að kostnaðarlausu, en greiða verður fyrir ljósrit og útprentanir.

Einnig er hægt að gera tillögur að kaupum á efni sem Bókasafn Kópavogs á ekki hjá upplýsingaþjónustunni. Lánþegi getur beðið um að vera látinn vita hvort efnið verður keypt og hvenær það kemur.

Öllum er velkomið að nota upplýsingaþjónustu Bókasafns Kópavogs!

Mynd augnabliksins

Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf